07.05.2026 Brautskráning stúdenta 2026 Brautskráning stúdenta Verzlunarskóla Íslands fer fram laugardaginn 23. maí í Borgarleikhúsinu. Kl. 12:00 – Athöfn fyrir nemendur á náttúrufræðibraut og alþjóðabraut. Kl. 14:00 – Athöfn fyrir nemendur á viðskiptabraut og nýsköpunar- og listabraut. Hver stúdent getur boðið þremur gestum til athafnarinnar. Eins og undanfarin ár verður brautskráningin send út í beinu streymi, og verður tengill á streymið aðgengilegur á vef skólans áður en athöfnin hefst.