Endurvottunarúttekt jafnlaunakerfis Verzlunarskóla Íslands 2023

Árið 2020 fékk skólinn jafnlaunavottun og í desember sl. fór fram endurvottunarúttekt á jafnlaunakerfinu sem skólinn stóðst.

Í úttektinni var meðal annars farið yfir lykilþætti í rekstri kerfisins, s.s. skýrslu innri úttektaraðila, forsendur og niðurstöður launagreiningar, niðurstöður mats á hlítingu á lagalegum kröfum og öðrum kröfum, skráningu og stöðu úrbóta og forvarna, og síðast en ekki síst, fundargerð af rýnifundi stjórnenda.

Verzlunarskóli Íslands starfrækir jafnlaunakerfi í samræmi við kröfur sem settar eru fram í staðlinum ÍST 85:2012 og nær til allra starfsmanna Verzlunarskólans. Markmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að launajafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Með þessu á að tryggja jafnan rétt, jöfn laun og sömu réttindi og kjör fyrir sömu eða jafn verðmæt störf, óháð kyni. Jafnlaunakerfi Verzlunarskóla Íslands hefur hlotið vottun frá vottunarstofunni iCert og í kjölfarið hefur Jafnréttisstofa veitt skólanum heimild til að nota Jafnlaunamerkið. Jafnlaunamerkið er skráð vörumerki og er því ætlað að vera gæðastimpill og hluti af ímynd og orðspori fyrirtækja og stofnana. Merkið staðfestir að komið hafi verið upp ferli sem tryggir að málsmeðferð og ákvarðanir feli ekki í sér kynbundna mismunun.

Jafnlaunastefna skólans hefur verið uppfærð og endurútgefin. Jafnlaunastefna VÍ

 

 

Aðrar fréttir