Forvarnardagur ungra ökumanna var haldinn í dag fyrir nemendur á 1. ári.

Dagskráin hófst í Bláa sal með fræðslu frá Samgöngustofu, lögreglu og Neyðarlínunni þar sem áhersla var lögð á mikilvægi notkunar bílbelta og hættuna sem felst í símanotkun við akstur.

Að fræðslu lokinni fóru nemendur út á bílastæði þar sem búið var að sviðsetja alvarlegt bílslys. Viðbragðsaðilar mættu hratt á vettvang og fengu nemendur að fylgjast með þegar farþegar voru klipptir út úr bílnum og ástand þeirra metið. Á meðan á björgun stóð veitti viðbragðsaðili beina lýsingu á aðgerðunum sem hjálpaði nemendum að skilja betur ferlið og alvarleika aðstæðna.

Eftir björgunina komu nemendur saman inni í skólanum þar sem viðbragðsaðilar svöruðu spurningum og ræddu við nemendur um reynslu sína og mikilvægi ábyrgðar í umferðinni.

Dagurinn var áhrifaríkur og gaf nemendum raunverulega mynd af alvarleika slysa í umferðinni.

Aðrar fréttir