Frábær árangur Verzlunarskólanema í eðlisfræðikeppni

Forkeppni eðlisfræðikeppninnar fór fram í síðasta mánuði og stóðu nemendur úr Verzlunarskóla Íslands sig afar vel. Af þeim 16 nemendum sem náðu bestum árangri og fengu þar með þátttökurétt í úrslitakeppninni eru átta úr Verzlunarskólanum.

Úrslitakeppnin fer fram í mars og verður spennandi að fylgjast með gengi nemendanna þar. Eftirfarandi nemendur úr Verzlunarskólanum tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni:

Lýður Þór Lýðsson
Elvar Magnússon
Andrea Erla Guðmarsdóttir
Max Emil Stenlund
Garðar Logi Björnsson
Tómas Emil Hallgrímsson
Guðlaugur Heiðar Davíðsson
Eysteinn Alfreð Magnússon

Við óskum þeim innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur og góðs gengis í úrslitunum.

Aðrar fréttir