12.04.2026 Frábær árangur Verzlunarskólans í Söngvakeppni framhaldsskólanna Um helgina fór fram Söngvakeppni framhaldsskólanna þar sem framhaldsskólar víðs vegar af landinu kepptu með glæsilegum atriðum. Fulltrúar Verzlunarskóla Íslands, þeir Baldur Björn Arnarsson og Sverrir Arnar Hjaltason stóðu sig einstaklega vel og tryggðu sér annað sætið. Verzlunarskólinn óskar þeim innilega til hamingju með þennan frábæra árangur!