02.02.2026 Góðgerðarvika Í þessari viku fer árleg góðgerðarvika skólans fram. Í ár sameinast nemendur um að styðja Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Stemningin er mikil í skólanum og nemendur leggja sig alla fram við að styðja málefnið með fjölbreyttum, hugmyndaríkum og skemmtilegum áskorunum. Á dagskrá góðgerðarvikunnar eru meðal annars þær áskoranir að fjórir strákar fara í hringferð um landið, tveir nemendur skipta um hlutverk og gerast MR-ingar í einn dag og tvíburar verða „fastir saman“ í heilan dag. Jafnframt munu tveir nemendur láta sköpunargáfuna njóta sín og teikna skopmyndir af samnemendum og starfsfólki og hópur nemenda skellir sér í morgun-sjósund. Hér má sjá Instagramsíðu Góðgerðarráðs: GVÍ Hægt er að styðja góðgerðarvikuna með því að leggja inn á reikninginn: Kennitala: 441079-0609 Reikningsnúmer: 515-14-106760.