Hópur Verzlinga í Höfn

Verzlunarskóli Íslands hefur um árabil átt í Nordplus-samstarfi við verslunarskóla í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Nemendur hittast í tvígang í einhverju hinna fjögurra landa og vinna saman í hópum að viðskiptahugmynd.

Í vikunni fyrir páskaleyfi tóku átta nemendur í öðrum bekk þátt í verkefninu sem að þessu sinni var Niels Brock-verslunarskólinn í Kaupmannahöfn gestgjafi. Verkefnið var framhald af vinnu sem hófst í Helsingfors í fyrra og snerist að sjálfbærum lausnum í viðskiptum og nýsköpun.

Nemendurnir tóku þátt í vinnustofum þar sem áhersla var lögð á hugmyndavinnu, þróun viðskiptahugmynda og hvernig hægt er að sameina umhverfisvitund og frumkvöðlahugsun. Á meðan dvölinni stóð fengu þeir einnig kynningu á dönsku nýsköpunarumhverfi og hlýddu á fyrirlestra þar sem sjálfbærni er í forgrunni.

Nemendur fengu að auki fræðslu frá fólki úr atvinnulífi Kaupmannahafnar og kynntust meðal annars rekstrarmódeli Tivoli-skemmtigarðsins. Verzlingarnir heimsóttu að auki sendiráð Íslands og fræddust um viðskipti landanna.

Með í för voru Rut Tómasdóttir enskukennari og Björn Jón Bragason lögfræðikennari.

Ferðin var afar lærdómsrík og gaf nemendunum dýrmæta reynslu af alþjóðlegu samstarfi, skapandi hugsun og sjálfbærri nýsköpun. Þeir stóðu sig með miklum sóma.

Íslendingarnir á tröppum Niels Brock-verslunarskólans í Höfn með sænskum félögum.

 

Aðrar fréttir