Listasamstarf með Dönum

Vikuna 6. til 10. apríl komu átta danskir nemendur ásamt kennurum sínum í heimsókn í Verzlunarskólann í tengslum við Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins og endurguldu þar með heimsókn okkar frá marsbyrjun þegar fimm stelpur úr 2-B fóru í sannkallaða listaferð til Kaupmannahafnar.

Ferðirnar báðar gengu vonum framar og var ýmislegt brallað, skoðað, skissað og smakkað. Hér á Íslandi var byrjað á fossaferð um Suðurlandið, Gullna hringnum, Friðheimar sóttir heim og að lokum sundferð í Laugarás Lagoon. Þrátt fyrir kokteil af slyddu, úða, snjókomu og hvassviðri náðu nemendur að skissa stórbrotið íslenskt landslag og mynda litadýrðina sem Ísland hefur upp á að bjóða. Í skólanum var svo haldið áfram med skissurnar og þeim bætt við sameiginlegt listaverk sem allur hópurinn byrjaði á í Köben.

Nemendur fóru að lokum í bæjarferð þar sem þau fengu leiðsögn um arkitekta- og myndlistarsýningar í Listasafni Reykjavíkur, heimsókn í Hörpuna, einstakt ilmferðalag í Fischersundi og svo flugu þau einnig yfir Ísland með FlyOverIceland. Verkefnið var vel heppnað í alla staði og nemendur okkar eins og alltaf til fyrirmyndar.

Aðrar fréttir