11.09.2025 Markaðsnefnd færði nemendum afslætti og skemmtilega stemningu Þessa vikuna fer fram Markaðsvika á vegum markaðsnefndar NFVÍ. Í tilefni vikunnar fengu allir nemendur afhent rafræn nemendaskírteini sem veita fjölbreytta og hagstæða afslætti hjá ýmsum fyrirtækjum. Í hádeginu í dag var sérstaklega líflegt á Marmaranum þegar mörg fyrirtækjanna mættu á staðinn til að kynna vörur sínar og þjónustu. Nemendur fengu tækifæri til að spjalla við fulltrúa fyrirtækjanna, prófa vörur og kynna sér þau fríðindi sem fylgja nýju nemendaskírteinunum. Stemningin var frábær og viðburðurinn vakti mikla ánægju nemenda.