24.03.2026 Mikið um að vera í alþjóðastarfinu í Verzló Vikuna 15. til 22. mars voru hvorki meira né minna en 58 nemendur og átta starfsmenn frá samstarfsskólum í Frakklandi, Ítalíu og Tékklandi í heimsókn í Verzlunarskólanum í tengslum við Erasmus plús áætlun Evrópusambandsins. Nemendur frá Verzlunarskólanum hafa einnig farið í heimsóknir til skólanna í löndunum þremur. Það er óhætt að segja að heimsóknirnar hafi gengið einstaklega vel þó að veðrið, upp á íslenskan máta, hafi verið alls konar. Meðal þess sem gert var á Íslandi voru ferðir um Gullna hringinn, heimsóknir í Perluna, í Ráðhús Reyjkavíkur, Alþingishúsið, Listasafn Íslands og margt fleira. Mánudaginn 16. mars var allur hópurinn saman í skólanum og tóku gestirnir, ásamt íslenskum þátttakendum, þátt í málstofum þar sem nemendur báru saman löndin fjögur. Var þetta að öllum líkindum stærsta samkoma erlendra nemenda sem haldin hefur verið í Verzló hingað til.