10.03.2026 Minningarorð um Árna Árnason Árni Árnason, framkvæmdastjóri og fyrrv. formaður skólanefndar Verzlunarskólans lést 5. mars sl. 76 ára að aldri. Árni fæddist 26. apríl 1949. Foreldrar hans voru Guðmundur Árnason forstjóri og Halla Aðalsteinsdóttir húsfreyja. Árni brautskráðist með stúdentspróf frá Verzlunarskólanum árið 1970 en hann var afar virkur í félagslífi skólans, var meðal annars fyrsti forseti Nemendafélagsins. Að loknu stúdentsprófi fór Árni til náms við Háskólann í Minnesota. Hann lauk þaðan B.Sc.-gráðu í rekstrarhagfræði árið 1973 og MBA-gráðu 1974. Að námi loknu gerðist hann hagfræðingur Verzlunarráðs Íslands og var þá jafnframt um hríð framkvæmdastjóri skólanefndar Verzlunarskólans. Árni var ráðinn framkvæmdastjóri Verzlunarráðs 1979 og gegndi því starfi til ársins 1987. Hann var framkvæmdastjóri fjármálasviðs BYKO 1987–1991 uns hann gerðist forstjóri Árvíkur sem hann hafði stofnað ásamt föður sínum 1983. Hann sat einnig í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og félaga, m.a. sem stjórnarformaður BYKO. Árni sat í skólanefnd Verzlunarskóla Íslands frá 1990 og var formaður frá 1991–1998. Hann gegndi formennsku í stjórn Sjálfseignarstofnunar Verzlunarráðs Íslands um viðskiptamenntun (SVÍV) 1998–2000, en SVÍV stofnaði Viðskiptaháskólann í Reykjavík sem síðar varð Háskólinn í Reykjavík. Eftirlifandi eiginkona Árna er Jóhanna Gunnlaugsdóttir prófessor. Þau eiga tvö börn og barnabörnin eru fjögur. Að leiðarlokum þakkar Verzlunarskóli Íslands hið mikla og óeigingjarna starf sem Árni Árnason vann í þágu skólans og viðskiptamenntunar á Íslandi. Skóflustunga tekin að húsi Viðskiptaháskólans við Ofanleiti. Árni var á þeim tíma formaður skólanefndar Verzlunarskólans. Frá vinstri: Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Þorvarður Elíasson skólastjóri og Árni.