04.03.2026 Nemendaheimsókn til Írlands Dagana 26. febrúar til 2.mars fór hópur nemenda í heimsókn til Írlands. Um er að ræða samstarfsverkefni milli Verzlunarskólans og Wilson’s Hospital School á Írlandi, en nemendur frá Írlandi heimsóttu Ísland í september í fyrra. Íslensku nemendurnir gistu á heimilum írsku nemendanna en Wilson’s Hospital School er staðsettur í um klukkutíma fjarlægð frá Dublin og búa nemendur í bæjum og þorpum þar í kring. Wilson’s Hospital School er um 250 ára gamall skóli og við hann er stór heimavist. Þar að auki ganga allir nemendur í skólabúningi. Vel var tekið á móti hópnum á fimmtudeginum. Þá fengu nemendur að fylgja írsku nemendunum í kennslustundir og síðan var haldið heim. Á föstudeginum var haldið til Dublin og fengu nemendur að skoða Trinity College. Á laugardeginum var haldið til Galway, á vesturströnd Írlands og eftir að hafa skoðað aðeins bæinn þá fór allur hópurinn á leik Glasgow og Connacht í ruðningi. Á sunnudeginum var frjáls dagur og eyddu nemendur deginum með þeim fjölskyldum sem þau dvöldu hjá. Dagurinn endaði síðan á sameiginlegum kvöldverði með öllum hópnum. Að lokum kom að kveðjustund og var haldið heim á mánudeginum. Þetta var yndisleg ferð í alla staði og fengu nemendur tækifæri til að kynnast írskri menningu og heyra hvernig enska er töluð þar.