02.03.2026 Nemendur í 3R og 3U fá innsýn í álframleiðslu Nemendur á líffræðisviði í jarðfræði fengu að kynnast starfsemi Rio Tinto í Straumsvík. Þar fer fram framleiðsla á áli, sem er ein af undirstöðum íslensks atvinnulífs. Álverin á Íslandi nýta yfir 80% af þeirri raforku sem framleidd er í landinu. Nemendur fengu stutta kynningu á starfseminni og gengu síðan um starfssvæðið, þar sem þeir kynntust þeim fjölbreyttu verkefnum sem tengjast álframleiðslunni. Heimsóknin vakti mikinn áhuga meðal nemenda, sem fannst sérstaklega fróðlegt að sjá hversu gríðarlega mikla orku þarf til að framleiða ál. Í framleiðsluferlinu myndast jafnframt sterkt segulsvið, sem meðal annars gerir það að verkum að málmhlutir, eins og bréfklemmur, geta staðið uppréttir. Verzlunarskólinn þakkar kærlega fyrir góðar móttökur og fræðandi kynningu.