Nemendur Verzlunarskólans sigruðu Beta-deild í Forritunarkeppni framhaldsskólanna

Forritunarkeppni framhaldsskólanna fór fram laugardaginn 7. mars 2026 í Háskólanum í Reykjavík og Háskólanum á Akureyri. Í keppninni fá nemendur tækifæri til að spreyta sig á krefjandi verkefnum og þróa forritunarhæfni sína. Keppninni var skipt í þrjár deildir eftir erfiðleikastigi: Delta, Beta og Alpha.

Sjö lið með nemendum Verzlunarskóli Íslands tóku þátt í keppninni, þar af tvö lið í Delta-deild og fimm lið í Beta-deild.

Árangurinn lét ekki á sér standa því eitt lið skólans sigraði Beta-deildina. Liðið heitir Team XY og í því eru Eysteinn Daði Hjaltason, Elvar Magnússon og Vilhjálmur Árni Sigurðsson.

Verzlunarskólinn óskar þeim til hamingju með árangurinn.

Aðrar fréttir