Nýnemavikan setur svip á skólalífið

Það er skemmtileg stemning í skólanum þessa dagana þar sem nýnemavikan stendur nú sem hæst.

Það er óhætt að segja að nýnemavikan sé frábær leið til að kynnast, mynda vinatengsl og skapa skemmtilegar minningar. Nýnemar hafa verið hvattir til að taka þátt í fjölbreyttum þemadögum sem hafa sett líflegan svip á daglegt skólastarf.

Á mánudaginn mættu þeir í sannkölluðum sólar- og sumarfílingi með sólgleraugu, blómaskreytingar og í litríkum fötum. Þriðjudagurinn var tileinkaður ofurhetjunum og fylltist skólinn af Spiderman, Wonder Woman, Superman og fleiri hetjum. Á miðvikudaginn tóku svo svartklæddir „Men in Black“ yfir.

En nýnemavikan snýst ekki einungis um að skarta flottum búningum – heldur einnig um liðsheild og skemmtilegar áskoranir. Bekkir safna stigum með ýmsum verkefnum, t.a.m. hafa þeir verið með upplestur fyrir bókasafnsstarfsmenn, hrósað  Matbúðarkonunum, keppt við kennara í armbeygjum, tínt rusl á skólalóðinni og jafnvel sungið þjóðsönginn í tíma hjá öðrum bekkjum. Að auki eru nýnemar á fullu að skreyta stofurnar sínar.

Vikunni lýkur með nýnemaferð á föstudaginn sem hefst klukkan 13:00. Nemendur snúa aftur í skólann um kl. 18:00, borða saman og taka þátt í skemmtilegri dagskrá sem endar á miðnætti. Skipulagningin er í höndum Skemmtó sem hefur lagt mikla vinnu í að gera vikuna sem eftirminnilegasta.

Aðrar fréttir