Pizzubakstur og góð samvera

Í gær  komu nemendur úr NGK, 3-X og 3-Y saman í skemmtilegt pizzapartý.

Martin kennari og Kristín Huld námsráðgjafi  stóðu fyrir samverunni. Martin, sá um að útbúa pizzadeigið og nemendur bökuðu sínar eigin pizzur með alls kyns áleggi að eigin vali. Ilmurinn af nýbökuðum pizzum fyllti rýmið og skapaði notalega og hlýlega stemningu, enda slógu pizzurnar í gegn. Það var mikið spjallað, hlegið og nemendur áttu notalega stund saman.

Aðrar fréttir