Skólastjóranum komið skemmtilega á óvart

GunnIngu skólastjóra var heldur betur komið á óvart í dag þegar hún gekk inn í hátíðarsal skólans, algjörlega ómeðvituð um að þar biði hennar fullur salur af nemendum og starfsfólki. Um leið og hún steig inn í salinn hófst kröftugur afmælissöngur og ánægjan skein úr andliti afmælisbarnsins.

Skólasamfélagið óskar GunnIngu innilega til hamingju með 50 ára afmælið.

Aðrar fréttir