23.02.2026 Skráning á opið hús Smelltu hér til að skrá þig á opið hús Fimmtudaginn 5. mars opnar Verzlunarskóli Íslands dyr sínar fyrir nemendum sem eru að ljúka 10. bekk í vor. Boðið verður upp á klukkutíma heimsókn í skólann þar sem nám skólans verður kynnt og boðið verður upp á Verzlólestina sem fer um skólann. Þá verður hægt að kynna sér betur námsbrautir skólans með samtali við starfsmenn og nemendur. Kynningin verður haldin fimmtudaginn 5. mars og bjóðum við upp á fjórar kynningar þann daginn. Mikilvægt er að skrá sig hér að ofan á þá tímasetningu sem hentar best. Tekið verður á móti 200 gestum í hverjum hópi. Við hlökkum til að taka á móti nemendum úr 10. bekk. Forráðamenn eru velkomnir með á kynninguna.