06.03.2026 Takk fyrir komuna á opna húsið Fjölmargir nemendur í 10. bekk ásamt forráðamönnum heimsóttu skólann á opnu húsi til að kynna sér skólann, námsframboðið og andrúmsloftið í Verzló. 10. bekkingarnir fóru í Verzlólestina, þar sem þeir heimsóttu helstu staði skólans og fengu innsýn í daglegt líf nemenda. Þá var einnig veitt kynning á náminu og þeim fjölbreyttu tækifærum sem Verzlunarskólinn hefur upp á að bjóða. Við erum afar þakklát fyrir þann mikla áhuga sem nemendur sýndu skólanum og vonum að þeir hafi notið heimsóknarinnar og fengið góða tilfinningu fyrir því sem skólinn hefur upp á að bjóða, bæði í námi og félagslífi. Auka opið hús verður mánudaginn 13. apríl klukkan 14:00. Nánari upplýsingar verða birtar síðar.