09.09.2025 Uppskeruhátíð skólaþróunarverkefna Mennta- og barnamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stóðu nýverið fyrir uppskeruhátíð styrkþega skólaþróunarverkefna sem tengjast menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Markmiðið með viðburðinum var að draga fram árangurinn af verkefnunum, efla tengsl milli þátttakenda og kynna næstu skref. Verzlunarskólinn átti þar tvo fulltrúa, þær Halldóru Ósk Hallgrímsdóttur og Katrínu Jónsdóttur, en skólinn fékk styrk til að halda skólaþingið sem fram fór í desember síðastliðnum. Á hátíðinni var m.a. kynnt ný vefsíða á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu þar sem safnað verður saman efni úr öllum verkefnunum til að auðvelda miðlun og notkun í öðrum skólum og stofnunum. Þá voru einnig sýnd fimm myndbönd sem gefa góða mynd af fjölbreyttum verkefnum á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi sem og í frístundastarfi.