15.08.2025 Verzlingar heimsækja Cambridge University Þrettán nemendur Verzlunarskólans tóku þátt í sumarnámskeiði í Cambridge ásamt tuttugu nemendum úr MH og einum úr MR. Námskeiðið bar yfirheitið The Uncomfortable Journey og markmiðið var að takast á við ýmsar þrautir, yfirstíga hindranir og takmarkanir og síðast en ekki síst að fá innsýn í einstakt háskólaumhverfi Cambridge. Þátttakendur bjuggu á stúdentagörðum Peterhouse College og fengu þannig að setja sig í spor háskólanema þar. Nemendur unnu krefjandi hópverkefni undir leiðsögn nokkurra doktorsnema frá Cambridge University og nutu jafnframt þess sem borgin hafði upp á að bjóða í frítíma sínum.