Verzlunarskóli Íslands sigraði í úrslitum Gettu betur

Mikil spenna ríkti þegar Verzlunarskóli Íslands og Menntaskólinn í Reykjavík mættust í úrslitum spurningakeppninnar Gettu betur.

Lið Verzlunarskólans stóð uppi sem sigurvegari eftir glæsilega frammistöðu.

Í liði Verzlunarskólans voru þau Dagbjörg Birna Sigurðardóttir, Katla Margrét Jónsdóttir og Ísak Trausti Ingólfsson Lehmann. Þau sýndu einstaka liðsheild og víðtæka þekkingu, sem tryggði þeim sigurinn að lokum.

Verzlunarskólinn óskar þeim innilega til hamingju með sigurinn!

 

Aðrar fréttir