02.03.2026 Verzlunarskólinn með fulltrúa í Evrópukeppni í stærðfræði Um helgina fór fram úrslitakeppni í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna. Þar stóðu nemendur Verzlunarskóli Íslands sig vel og náðu góðum árangri. Elvar Magnússon lenti í fjórða sæti í keppninni og var valinn í lið Íslands sem keppir í fyrstu Evrópukeppni í stærðfræði. Keppnin fer fram í Litáen dagana 23.–29. apríl í vor. Við óskum Elvari til hamingju!