08.04.2026 Vetrarævintýri í Numedal og söguslóðir á Íslandi Sex nemendur á þriðja ári, ásamt sex nemendum úr Numedal videregående skole, hafa á þessari önn unnið að stuttmynd byggðri á Gunnlaugs sögu Ormstungu. Undirbúningur hófst þegar á haustönn og í febrúar var haldið til Osló og þaðan áfram til smábæjarins Nore í Numedal í Noregi. Þar tóku norsku nemendurnir vel á móti hópnum og buðu þeim inn á heimili sín. Óhætt er að segja að Numedal í vetrarbúningi hafi minnt á sviðsmynd úr norrænum jóladagatalsþætti. Í 20 stiga frosti héldu nemendur út í fullum víkingaskrúða til að taka upp atriði fyrir stuttmyndina, áður en þeir skiptu yfir í skíðagalla og kynntust þjóðaríþrótt heimamanna. Stafkirkja bæjarins er eitt helsta stolt svæðisins, en elsti hluti hennar er frá 12. öld. Nemendum bauðst að taka þar upp atriði úr sögunni, sem gerði upplifunina enn eftirminnilegri. Norðmennirnir tóku einstaklega vel á móti hópnum og kynntu bæði nemendum og kennurum fyrir brunosti og gönguskíðamenningu. Dvölinni lauk með ferð til Osló, þar sem nemendur kynntust verkum Edvards Munch, víkingamenningu og norskri fatatísku 😉 Mánuði síðar komu norsku nemendurnir ásamt kennurum sínum til Íslands til að halda tökum áfram. Þá gafst tækifæri til að kynna íslenska menningu og náttúru. Tökur fóru að mestu fram á Borg á Mýrum, þar sem Gunnlaugur og Hrafn börðust um ástir Helgu fögru. Auk kvikmyndagerðar fengu norsku nemendurnir að kynnast íslenskri sundmenningu og fara í svokallaða „bragðarefsbíltúra“. Einnig var farið í hefðbundinn ferðamannarúnt um Gullna hringinn og Suðurströndina. Verkefnið sýnir glöggt hversu mikilvægt samstarf Norðurlandanna er, og hversu dýrmætur stuðningur Nordplus er fyrir slíkt samstarf.