Norður Atlantshafs­bekkurinn NGK

Norður Atlantshafsbekkurinn (Nord-Atlantisk gymnasiumklasse), NGK, er nýjung fyrir ungmenni á Íslandi, Færeyjum, Grænlandi og í Danmörku, sem hafa áhuga á að mennta sig á Norður- Atlandsshafssvæðinu.

Stúdentspróf er tekið á þremur árum

Nemendur mynda bekk sem á þremur árum fær bæði faglegt og menningarlegt framlag frá þremur löndum. Að auki fá þeir aðgang að einstakri námsbraut sem inniheldur meðal annars líftækni, stærðfræði og norðurskautstækni. Námsframboð og kennsla er samkvæmt danskri námskrá og stúdentsprófið er eins og frá dönskum framhaldsskóla.

Nemendurnir dvelja fyrsta árið sitt í Danmörku þar sem þeir stunda nám í Gribskov Gymnasium í Helsinge. Á öðru árinu fara nemendurnir yfir til Færeyjar og stunda nám í Miðnám í Kambsdal og á þriðja og síðasta árinu fer bekkurinn til Grænlands í GUX, Sisimiut.

  • Nemendur greiða fyrir húsnæði, mat og ferðir.
  • Einn bekkur sem samanstendur af nemendum frá Íslandi, Færeyjum, Grænlandi og Danmörku.
  • Kennslan fer fram í þremur löndum á þremur árum.
  • Danskt stúdentspróf (STX) og einstakar upplifanir við Norður-Atlantshafið.
  • Einstakt nám á náttúrufræðibraut með námsgreinum eins og líftækni, stærðfræði, norðurskautstækni og eðlisfræði.
  • Kennsla fer fram á dönsku.
Gribskov Gymnasium

Gribskov Gymnasium er á syðsta hluta Norður Atlantshafsins. Skólinn liggur í útjaðri stórs skógar og við notum umhverfið og nærsamfélagið eins mikið og við getum í náminu. Andrúmsloftið í skólanum einkennist af ungu fólki sem er áhugasamt og skapandi í hinu daglega lífi. Húsnæðið sem þú býrð í á meðan þú ert í Gribskov er í næsta nágrenni við skólann.

Miðnám á Kambsdal

Vinnugleði, samvinna og nýsköpun er höfð í hávegum í Miðnám á Kambsdal. Þú verður hluti af hinu virka nærumhverfi og samvinnu með atvinnulífinu og stofnunum þess. Áhersla er lögð á að nota fagmennsku sem við lærum í daglegu lífi. Í skólanum eru 500 nemendur. Skólinn stendur einstaklega fallega í Kambsdal á Austurey með fögru útsýni yfir fjörðinn og fjöllin græn. Á meðan á náminu stendur býrðu á heimili.

GUX Sisimiut

Skólinn er á Grænlandi, rétt norðan við heimskautsbaug. Menntaskóla- og stúdentagarðslífið er bæði virkt og náið og nánast allir nemendur við skólann búa á stúdentagarðinum. Það búa 5000 manns í Sisimiut og menntaskólinn er eini skólinn á Grænlandi sem er með námsgreinar sem lúta að náttúrufræði á A stigi. Hér lærir þú líka námsgreinar eins og heimskautstækni og menningu á grænlenskan máta. Í daglegu lífi munu nemendurnir blanda geði við íbúa bæjarins og taka þátt í samfélaginu. Náttúran býður upp á fjölbreytta útiveru svo sem fjallgöngur, skíðaíþróttir og akstur hundasleða eða snjósleða. Á síðasta menntaskólaárinu býrðu á stúdentagarði í Sisimiut í nágrenni skólans.