Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Fundur í skólaráði, haldinn á skrifstofu aðstoðarskólastjóra klukkan 12:20 þann 17. september 2025.
Mættir: Elísabet Halldórsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Óskar Breki Bjarkason, Kristín Salka Auðunsdóttir og Þorkell H. Diego, sem ritar fundargerð. Fjarverandi Guðrún Inga Sívertsen og Ásta Dís Ingimarsdóttir, sem deilir sæti með Kristínu Sölku.
Dagskrá fundar.
Hlutverk skólaráðs:
Farið var yfir hlutverk ráðsins en hlutverk þess er að fjalla um skólareglur, félagslíf nemenda, umgengni í skólanum, vinnu- og félagsaðstöðu nemenda, stefnumótun skólans auk annarra mála sem vísað er til skólaráðs.
Próftafla haustannar:
Gylfi kennslustjóri gerði grein fyrir þeim drögum að próftöflu annarinnar sem nú liggja fyrir. Hagsmunaráð mun í kjölfarið fá drögin í hendur, kynna þau fyrir nemendum og taka við ábendingum ef einhverjar berast.
Verkefni skólaráðs veturinn 2024-2025:
1) Rætt var um að nýta daga eins og forvarnardaginn, 1. okt til þess að fjalla um mál sem skipta máli í skólasamfélaginu. Engin ákvörðun var tekin en meðal þess sem var nefnt var einmanaleiki og nikotínpúðanotkun. Í framhaldinu var rætt um að oftar mætti vera meira samráð á milli nemenda og kennara þegar kemur að dögum sem vert er að vekja athygli á, t.d. bleikir og bláir dagar
2) Endurskoðun á skólareglum stendur yfir og og verða til umræðu í skólaráði þegar þar að kemur.
Erindi til skólaráðs:
Engin formleg erindi hafa borist skólaráði en hægt er að senda inn erindi á netfangið skolarad@verslo.is
Önnur mál:
Rætt var um nefndarviðtöl í stjórnarnefndir og hafa þau gengið vel að sögn talsmanna nemenda enda hafa engin erindi þeim tengdum borist hagsmunaráði eða skólastjórnendum. Framundan eru viðtöl í miðstjórnarnefndir.
Rætt var um nýstofnaðan kór Verzlunarskólans og þær væntingar sem gerðar eru til hans, bæði hvað varðar félagsleg tengsl og framlag hans til viðburða innan skólasamfélagsins. Næsti fundur er boðaður 15. október.
Fundi slitið kl. 13:05.