2. fundur 2025 – 15. október

Fundur í skólaráði haldinn á skrifstofu skólastjóra klukkan 12:20 þann 15. október 2025. 

Mættir: Guðrún Inga Sívertsen, Katrín Jónsdóttir, Óskar Breki Bjarkason, Kristín Salka Auðunsdóttir  og Þorkell H. Diego, sem ritar fundargerð. Fjarverandi Elísabet Halldórsdóttir, Ásta Dís Ingimarsdóttir og sem deilir sæti með Kristínu Sölku. 

Dagskrá fundar. 

– Fundargerð síðasta fundar 

– Erindi til skólaráðs 

– Önnur mál  

Fundargerð síðasta fundar:
Fundargerð síðasta fundar var rædd og borin upp til samþykktar og var hún samþykkt.
 

Erindi til skólaráðs: Engin formleg erindi bárust skólaráðinu en hagsmunaráð fór yfir nokkrar athugasemdir sem þeim hefur borist.  

Önnur mál:  

GIS fór yfir afmælisdagskrána og óskaði eftir virkri þátttöku stjórnar.
KJ, ræddi um möguleika á því að vera með valgrein í tónlist eða kór. Einnig ræddi hún um möguleika nemenda á að fá einingu fyrir að taka þátt í kór. Í kjölfarið var tekin upp umræðan um einingu fyrir félagslíf. Ýmsir möguleikar voru ræddir, meðal annars hvort félagslífsfulltúi hafi næga yfirsýn yfir virkri þátttöku nemenda í félagslífinu til þess að meta hverjir ættu að fá einingu. Fulltrúar nemenda ætla að koma með mótaða hugmynd á næsta fund. 

Rædd var þörfin á að minnka álag á Bláa sal, meðal annars vegna þess að nemendur koma með mat í Bláa sal. Þá yrðu smærri viðburðir, eins og treilerar einungis sýndir á Marmara. Fulltrúar nemenda  óskuðu eftir frekari útlistun á hvers lags viðburðir fengju að vera í Bláa sal og hverjir verða bara á Marmara. 

Fundi slitið kl. 13:05.