3. fundur 2026 – 3. febrúar

Boðaður er fundur í skólaráði 3. febrúar 2026. 

 Mættir: Ásta Dís og Óskar Breki sem fulltrúar nemenda, Elísabet Halldórsdóttir er fulltrúi kennara, GunnInga og Þorkell Diego, sem jafnframt ritar fundargerð, eru fulltrúar stjórnenda, Katrín Jónsdóttir boðaði forföll. 

Gylfi Hafsteinsson mætir sem gestur.   

Dagskrá: 

– Fundargerð síðasta fundar var rædd og samþykkt.  

– Erindi til skólaráðs: Eitt erindi barst og varðaði fyrirkomulag skyndiprófa og reglur um þau. 

Er viðurkennt að hafa skyndipróf þar sem nemendur hafa ekki hugmynd um hvenær á önninni þau fara fram?  

Má hafa 2x skyndipróf sem gilda hvort um sig 12% af námsmati áfangans? 

Erindið var rætt og niðurstaðan var að fyrirkomulagið er óhefðbundið en hvorutveggja er leyfilegt og rúmast innan þess verklags sem er skyndipróf í hverjum áfanga.  

 Próftafla vorannar: Gylfi fór yfir próftöfluna, hvaða hugmyndir búa að baki niðurröðun prófa. Einnig fór hann yfir kennslulok í hverjum árgangi.  

– Kosningar í stjórn og nefndir NFVÍ: Dagsetningar voru ræddar og verður kosningavikan 20. til 24. apríl. Foreldraráð skólans hefur verið að velta fyrir sér kosningum í embætti og nefndir innan NFVÍ. Fyrirkomulag kosninga var því rætt, meðal annars hvort markaðsnefnd ætti að vera stjórnarnefnd einnig hvort kjósa ætti í fulla nefnd í stað þess að skilja eftir sæti og taka inn eftir nefndarviðtöl. Ræddir voru kostir og gallar við fyrirkomulagið eins og það er og hverju breytingar myndu skila. Ákveðið var að Óskar færi á fund foreldraráðs með GunnIngu til þess að ræða kosningar og svara spurningum sem þar kunna að vera. 

Námsáætlanir: Bent var á að enn vantar námsáætlanir í nokkrum áföngum. Þorkell mun ýta við kennurum þar sem vantar. 

– Útskrift – að lokum var dregið um tímasetningu á brautskráningu í maí. Fulltrúar nemenda sáu um draga og var niðurstaðan eftirfarandi: 

Brautskráning klukkan 12:00; Félagsvísinda- og alþjóðabraut og náttúrufræðibraut. 

Brautskráning klukkan 14:00; Viðskiptabraut og nýsköpunar- og listabraut. 

Fundi slitið klukkan 13:00