Starfsfólk VÍ
Fréttir frá alþjóðasamstarfinu
Komdu í heimsókn á bókasafnið
Fjarnám
Fundur settur af formanni kl.17.30 og fundi slitið kl.19.00.
Staðsetning fundar: Mathús Garðabæjar
Viðstaddir: Þórunn Sigþórsdóttir (formaður), Sunna Ósk Friðbertsdóttir (ritari), Nanna Guðný Sigurðardóttir (gjaldkeri), Halldór Hildimundarson, Sigríður Linda Vigfúsdóttir og Margrét Íris Ármann
Frá formanni: Þar sem við vorum í fyrsta sinn í gæslu á Verslóvælinu og það var með öðrum hætti en gæslan hefur verið hingað til, held ég að það sé gott að fara yfir hvað gekk vel og hvað mætti bæta – ef að þetta verður eitthvað sem verður áfram. Foreldrar sem voru í gæslu voru sammála um að þetta var mikil vinna, 4-5 tíma vakt. Höfum ekki áður farið inn á viðburði, einungis staðið fyrir utan með teppi og áfengismæla fyrir 1. ár. Aðilar sammála um leita þarf betur á nemendum, alltof mikið áfengi komst inn í Hörpu þar sem starfsfólk Hörpu og Securitas taldi sig ekki hafa heimild til að snerta krakkana. Þetta hefur ekki verið vandamál hjá gæslunni sem er ráðin fyrir böll á vegum Verzló. Að mati foreldraráðs ætti að mæla áfengi hjá 1. árs nemum á Vælinu eins og öðrum viðburðum á vegum skólans. Þórunn fer á fund með Gunningu og ræðir hvað gekk vel og hvað gekk illa og hvernig framhaldið með Vælið gæti litið út varðandi foreldragæslu.
Umræður um mögulega fyrirlestra fyrir nemendur. Sérstaklega rætt vímuefnið Spice, hversu hættulegt það er og erfitt að sjá, lyktarlaust í veipi. Skoða hvort samfélagslögreglan eða aðili sem kom með fyrirlestur í grunnskóla í Garðabæ sé góð hugmynd. Fundarfólk hugsar líka aðra möguleika.
Rætt um að hafa facebook síðu fyrir hvern árgang, gert í samráði við skólann, þar sem þannig síða yrði opnuð þegar nemendur koma í skólann og lokuð þegar þeir útskrifast. Þetta væri tilvalið fyrir foreldra sem eiga börn í skólanum að eiga samskipti. Facebook síða foreldrafélagsins er með þeim hætti að allir foreldrar sem hafa einhvern tímann átt börn í skólanum halda oft áfram að vera inn á þeirri síðu og því oft erfiðara að ná til foreldra. Þetta væri tækifæri fyrir foreldrafélagið að ná betur til foreldra, þó að þau hafi einnig aðgang að þeim í gegnum skólastjórnendur sem gera sent póst beint á foreldra fyrir félagið. Þórunn mun ræða þessa hugmynd við Gunningu skólastjóra.
Lagt til að fá nemendur sem hafa áhuga á að koma fram, söng, leikur, uppistand, hvað sem er til að hafa skemmtikvöld fyrir foreldra. Foreldraráð styrkir árgangana á móti. Hafa svo kaffi eftir skemmtunina.
Lagt til að hafa næsta fund í byrjun febrúar. Fá Gunningu og hugsanlega Halldóru félagslífsfulltrúa inn á fundinn. Einnig væri gott að fá formenn nefnda til að koma. Áhugi á að ræða hvernig kosningu í nefndir er háttað – hvort að það ætti eingöngu að vera kosning en ekki viðtöl. Á þeim fundi verður gæsla fyrir nemó skipulögð.
Reykjavík, desember 2025 Sunna Ósk Friðbertsdóttir Ritari Foreldraráð