Reglur um vanskil

Við vanskil fer eftirfarandi ferli í gang:

Dagur 1:
Nemandi fær SMS um að hann sé kominn í vanskil.

Dagur 2:
Nemandi fær SMS þar sem fram kemur að lokað verði á öll útlán verði gagninu ekki skilað.

Dagur 3:
Nemandi fær SMS um að lokað hafi verið á öll útlán vegna vanskila.

Fjórum vikum síðar:
Nemandi fær SMS þar sem fram kemur að þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir hafi gagninu ekki verið skilað og að tveimur dögum síðar verði sendur út greiðsluseðill.

Athugið:
Nemandi getur farið fyrr úr banni með því að hafa samband við bókasafnsstjóra og láta vita að gagnið sé glatað. Í kjölfarið verður greiðsluseðill sendur út strax.

Viðmiðunargjald 

Bók 3500 kr. Ef um er að ræða nýja bók (innan tveggja ára) gildir innkaupsverð.
Spil 3500 kr. Ef um er að ræða nýja nýtt spil (innan tveggja ára) gildir innkaupsverð.
Tölvur 20.000 kr.
Hleðslutæki 4000 kr
Myndavél 20.000 kr.
Heyrnatól 2000 kr.
Vasareiknir 2000 kr.
Teppi 1000 kr.
Pennaveski með litum 1000 kr.
Þrífótur 4000 kr.
Hljóðnemi 5000 kr.