Bókasafnið
Verið velkomin á vefsíðu bókasafnsins.
Bókasafnið er upplýsingamiðstöð fyrir nemendur og starfsfólk skólans.
Meginhlutverk þess er að veita nemendum og starfsmönnum greiðan aðgang að upplýsingum og heimildum vegna náms og kennslu. Bókasafnið veitir nútímalega, fjölþætta og persónulega þjónustu og styður nám og kennslu við skólann. Þjónustan við notendur felst einkum í faglegri upplýsingaþjónustu, leiðbeiningum við heimildaleit og upplýsingalæsi ásamt úrvinnslu heimilda, útlánum og margs konar námsaðstoð. Einnig styður safnið þróunarstarf skólans og félagslíf. Efnisskaup safnsins taka að nokkru mið af hlutverki þess.
Tilgangur vefsíðunnar er m.a. að veita greiðan aðgang að rafrænu efni á skjótan og þægilegan hátt. Hér til hægri eru vegvísar að því efni sem finna má á síðunum. Útlán eru eingöngu ætluð nemendum og starfsfólki skólans. Aðrir verða að fá sérstakt leyfi til að nýta gögn safnsins á staðnum.
Starfsfólk safnsins aðstoðar notendur við upplýsingaleit og heimildaöflun.
Bókasafnsfræðingar annast upplýsingaþjónustu og má senda þeim fyrirspurnir. Tillögur um breytingar eða viðbætur á síðuna má senda til
umsjónarfólks .
Verið velkomin!