Viðskiptabraut

Á viðskiptabraut er lögð áhersla á viðskiptagreinar s.s. bókfærslu, hagfræði, fjármál, lögfræði og frumkvöðlafræði. Sérkenni línunnar eru m.a. markaðsfræði, stjórnun og enska.

  • NámsleiðStúdentspróf
  • Einingar 205 fein.

Á viðskiptabraut er lögð áhersla á kjarnagreinar og sérgreinar brautarinnar í stærðfræði og viðskiptagreinum, s.s. hagfræði, viðskiptafræði og markaðsfræði. Nemendur fá verslunarpróf á 2. þrepi að loknum 112 einingum og lýkur brautinni með stúdentsprófi á 3. hæfniþrepi. Nemendur sem velja viðskiptabraut fá breiða almenna menntun og góðan undirbúning undir frekara nám á háskólastigi. Sérstök áhersla er lögð á svið þar sem viðskiptamenntunar er krafist svo sem í hagfræði, viðskiptafræði og lögfræði.

Inntökuskilyrði á viðskiptabraut er grunnskólapróf og að lágmarki hæfnieinkunn B í íslensku, ensku og stærðfræði. Ef fleiri umsóknir berast en skólinn getur tekið við verður tilgreint á heimasíðu hans hvernig inntöku nemenda er háttað.

Nám á brautinni er þrjú ár með 205 einingum til stúdentsprófs. Námið skiptist annars vegar í 95 eininga skólakjarna, sem er sameiginlegur á öllum stúdentsbrautum skólans, og hins vegar í 50 eininga brautarkjarna sem samanstendur af fögum sem einkenna brautina. Tveir af fimm stærðfræðiáföngum brautarkjarnans eru inni í bundnu pakkavali þar sem hagfræðilínan inniheldur annars konar stærðfræði en viðskipalína. Þá skulu nemendur velja sér einn pakka af þremur sem inniheldur 40 einingar innan viðskiptagreina og fleiri tengdra greina. Að auki velja nemendur 20 einingar í frjálsu vali þó háð þrepaskiptingu. Námið er fyrst og fremst bóklegt og fer fram í skólanum. Fyrir utan almenna menntun er á brautinni lögð áhersla á nám í viðskiptagreinum og stærðfræði.

Lögð er áhersla á fjölbreytilegt námsmat. Lokaeinkunn hvers áfanga samanstendur ýmist af lokaprófi og símati eða eingöngu símati. Dæmi um símat er leiðsagnarmat, jafningjamat, munnleg og skrifleg verkefnaskil. Í upphafi hverrar annar er nemendum kynnt námsáætlun, hæfniviðmið og tilhögun námsmats hvers áfanga. Til að standast áfanga skal nemandi fá að lágmarki einkunnina 5,0.

Einingafjöldi á brautinni er 205 einingar og er námstími til stúdentsprófs þrjú ár. Nemandi tekur því að meðaltali 68 einingar á ári. Í lok hverrar annar er ferill nemandans gerður upp og þarf hann að hafa náð að minnsta kosti 5,0 í öllum áföngum annarinnar áður en hann færist upp á næstu önn. Nánari skýringar á námsframvindu er að finna í skólareglum.

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að

  • Geta nýtt sér nýjustu upplýsingatækni til að leysa fjölbreytt verkefni
  • Sýna frumkvæði, ábyrgð og umburðarlyndi og beita gagnrýnni hugsun
  • Miðla upplýsingum í ræðu og riti jafnt á íslensku sem og erlendum tungumálum
  • Meta og skilja menningarleg verðmæti
  • Gæta jafnréttis á öllum sviðum og temja sér ríka siðferðisvitund
  • Meta upplýsingar um samfélagið, umhverfið og náttúruna
  • Taka þátt í umræðum og rökstyðja mál sitt á málefnalegan hátt
  • Virða skoðanir annarra og geta leyst verkefni í samvinnu við aðra
  • Takast á við frekara nám í viðskiptafræði, hagfræði og öðrum tengdum greinum
  • Sýna verklega færni í viðskiptatengdnum greinum sem nýtist í námi og starfi
  • Setja sig inn í umræðu líðandi stundar varðandi verslun og viðskipti og mynda sér skoðanir
  • Gera sér grein fyrir hvað felst í samfélagslegri ábyrgð og siðferði í viðskiptum
  • Takast á við nám á háskólastigi, hérlendis sem og erlendis

Áfangar á Viðskiptabraut viðskiptalína

Grein 1.ár 2.ár 3.ár
Íslenska 2RM06 2GF05 3ÞT05 3NB05
Stærðfræði 2ÞA05 2HJ05 2LT05 3FF05 3HF05
Enska 2OM05 2MV05 3SV05 3VI05 3ME05
Danska 2MM05 2NS05
Spænska (þriðja tungumál) 1SA05 1SB05 1SC05
Þýska (þriðja tungumál) 1ÞA05 1ÞB05 1ÞC05
Franska (þriðja tungumál) 1FA05 1FB05 1FC05
Saga 2MS05 3MH05
Lögfræði 3LR05
Bókfærsla 1BR05 2BT05 3SS05
Markaðsfræði 2HN05
Fjármál 2TP05
Hagfræði 1ÞF05
Rekstrarhagfræði 2MT05
Stjórnun 2HK05
Lokaverkefni 3FS05
Náttúrufræði 1EJ05 1EL05
Vélritun 1FI02
Tölvur 2RT05 3UT05
Íþróttir 1ÍA01 1ÍB01 1ÍC01 1ÍD01
Lífsleikni 1NF00 1NF01 1NB00 1NB01 1NV00 1NV01
Val XXX05
XXX05
XXX05
XXX05

Aðrar námsbrautir og línur